top of page
Aluminum Supplier

ÞJÓNUSTA STÁLIÐJUNNAR

Stálsmíði er okkar fag og hefur verið allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1959. Starfsfólk fyrirtækisins býr yfir mikilli sérfræðikunnáttu og tækni á sínu sviði. Við rekum stóra og öfluga stálsmiðju þar sem öll okkar framleiðsla fer fram.

  

Okkur finnst mikilvægt að miðla þekkingu okkar áfram. Við veitum því viðskiptavinum okkar aðstoð og leiðbeiningar þegar þeir hanna og leggja grunn að nýrri framleiðslu. Einnig sérsmíðum við eftir pöntunum.

 

Þegar að þú leitar til okkar leggjum við okkur fram við að veita vandaða handleiðslu í gegnum ferlið, allt frá þrívíddarteikningum þar til að varan er tilbúin.

 

Hjá okkur í Stáliðjunni eru gæði í fyrirrúmi og við notum því aðeins fyrsta flokks efnivið sem hefur verið gæðaprófaður og hefur þvi langa og góða endingu.

20190116_085505.jpg

Plötuvinnsla

Plötudeildin hefur á að skipa Amada cnc plötuklippum 3m

Amda cnc kantpressu 2,5m 

Amada cnc fjölllokk 

Euromak Hornaklippur

Arcligth cnc Plasma skurður 

20190116_085420.jpg

Rör og Teinar

CNC Rörabeygju og röravals fyrir rör frá Ö12mm til 38mm

cnc Vírabeygjvél fyrir teina Ö6-12mm

cnc endformari fyrir rör

Röravals

IMG_6825.jpg

Suða og samsetning

Starfsmenn okkar eru færir á MIG/TIG suður bæði á járn, ryðfrítt stál, ál og messing. Starfsemin er í 1.100 fermetra húsnæði vel útbúið til hverskonar stálsmíði. Einnig er hér bólstrunarverkstæði.

bottom of page